Landhelgisgæsla Íslands/Icelandic Coast Guard (Facebook)
Viljayfirlýsing um nýtt stjórnunarnám í hafsvæðastjórnun á háskólastigi var undirrituð um borð í varðskipinu Þór í Reykjavíkurhöfn í gær.
Um er að ræða samstarfsverkefni Landhelgisgæslu Íslands, Háskólans á Bifröst og Tækniskólans um nám sem leggur áherslu á leit og björgun á sjó, leiðtogafræði og hafsvæðastjórnun.. Markmið námsins er meðal annars að koma til móts við þarfir atvinnulífsins um fagmenntun stjórnenda og tækifæri til frekari starfsþróunar hjá einstaklingum sem starfa í sjávarútvegstengdum greinum. Meginþættir námsins munu byggja á leiðtogafræðum, stjórnun, siglingafræði, lögfræði, öryggismálum auk þess sem áhersla verður lögð á leit og björgun.
Skipulag námsins verður byggt upp í samstarfi við Landhelgisgæsluna. Lengd námsins verður fjórar annir. Hildur Ingvarsdóttir, skólameistari Tækniskólans, segir þetta mikilvægt framfaraskref.
,,Ég fagna því að skólarnir tveir og Landhelgisgæslan séu að taka höndum saman um...
View original post