avatar
NATO OTAN Military Army News - North Atlantic Treaty Organization by RTP [Marine, Navy, Air, Space, Ground, Coast Force EU USA]
@natoarmynews
28.08.2025 22:20
Landhelgisgæsla Íslands/Icelandic Coast Guard (Facebook)

Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar hefur að undanförnu borist fjöldi ábendinga um borgarís á veiðislóðum og siglingaleiðum umhverfis landið. Eins og alltaf þegar slíkar tilkynningar berast eru lesnar út siglingaviðvaranir þar sem sjófarendur eru upplýstir um staðsetningu íssins. Vegna fjölda tilkynninga var ákveðið að áhöfnin á TF-EIR færi í ískönnunarflug á siglingaleiðinni undan Norðvesturlandi, þ.e. frá Sauðanesi að Hornbjargi og á veiðislóð norður af Ströndum.

Vel viðraði til ískönnunarflugsins í gær og þegar þyrlusveit Landhelgisgæslunnar var stutt vestur af Skagatá kom áhöfnin auga á fyrsta borgarísjakann. Þyrlusveitin tilkynnti stjórnstöð Landhelgisgæslunnar um borgarísinn og í kjölfarið var siglingaviðvörun gefin út enda var ísinn í siglingaleið skipa á þessum slóðum.

Þyrlusveitin hélt ferð sinni áfram og þegar hún var stödd norður af Hornbjargi varð áhöfnin vör við stóran borgarís í veðurratsjá þyrlunnar en hann var djúpt...

View original post
765

Обсуждение 0

Обсуждение не доступно в веб-версии. Чтобы написать комментарий, перейдите в приложение Telegram.

Обсудить в Telegram