avatar
NATO OTAN Military Army News - North Atlantic Treaty Organization by RTP [Marine, Navy, Air, Space, Ground, Coast Force EU USA]
@natoarmynews
20.08.2025 05:08
Landhelgisgæsla Íslands/Icelandic Coast Guard (Facebook)

Landhelgisgæsla Íslands gegnir mikilvægu hlutverki þegar kemur að leitar-, björgunar- og sjúkraþjónustu á Norður-Atlantshafi. Þáttur stjórnstöðvarinnar í Skógarhlíð er veigamikill þegar mál af slíkum toga koma upp enda er það hlutverk varðstjóra í stjórnstöð að samhæfa aðgerðir og sjá til þess að unnt sé að leysa þau verkefni sem upp koma með farsælum hætti.

Síðastliðnir sólarhringar hafa verið annasamir hjá varðstjórum stjórnstöðvar Landhelgisgæslunnar.

Á sunnudaginn bárust tvær beiðnir um sjúkraflug á haf út. Önnur barst frá íslensku skipi sem var að veiðum í Síldarsmugunni. Skipið var þá um 350 sjómílur frá austurströnd Íslands en í um 230 sjómílna fjarlægð frá Noregi. Beiðni um aðstoð barst stjórnstöð Landhelgisgæslunnar og var það mat vakthafandi læknis þyrlusveitarinnar að sækja þyrfti skipverjann og koma honum undir læknishendur. Varðstjórar stjórnstöðvar höfðu þá samband við kollega sína í björgunarmiðstöðinni í Noregi...

View original post
662

Обсуждение 0

Обсуждение не доступно в веб-версии. Чтобы написать комментарий, перейдите в приложение Telegram.

Обсудить в Telegram