Landhelgisgæsla Íslands/Icelandic Coast Guard (Facebook)
Tilkynningar til sjófarenda hafa verið sendar til áskrifenda og birtar á vef Landhelgisgæslu Íslands. Þær má finna í ummælum hér að neðan.
Í þessum tilkynningum er m.a. að finna upplýsingar til innsetningar í kort eftir mælingar eftirlits- og sjómælingaskipsins Baldurs.
Baldur hefur á undanförnum misserum verið við dýptarmælingar út af Hornströndum, og hafa í þeim mælingum komið fram frávik frá upplýsingum í núgildandi kortum.
Þessi frávik munu koma inn í nýjar útgáfur sjókorta þegar þau eru fullunninn en brýnt þykir að koma umræddum upplýsingum strax á framfæri við sjófarendur sem munu fara um svæðið.
Því til viðbótar eru upplýsingar um flak, rannsóknarsvæði í Steingrímsfirði og tilfærslu á áður tilkynntu rannsóknardufli í Eyjafirði.
Обсуждение 0
Обсуждение не доступно в веб-версии. Чтобы написать комментарий, перейдите в приложение Telegram.
Обсудить в Telegram