avatar
NATO OTAN Military Army News - North Atlantic Treaty Organization by RTP [Marine, Navy, Air, Space, Ground, Coast Force EU USA]
@natoarmynews
09.05.2025 23:04
Landhelgisgæsla Íslands/Icelandic Coast Guard (Facebook)

Varðskipið Þór var í vikunni við störf í Flatey á Breiðafirði en heimamenn höfðu samband við Landhelgisgæsluna vegna yfirvofandi vatnsskorts í eynni. Áhöfn Þórs dældi 47 tonnum af ferskvatni yfir í eyna.

Dælingin gekk prýðilega og voru vatnsbirgðir Flateyinga komnar í gott horf að henni lokinni.

Eitt af lögbundnum hlutverkum Landhelgisgæslunnar er að aðstoða hinar dreifðu byggðir landsins þegar á þarf að halda.

Myndir: Guðmundur Fylkisson
368

Обсуждение 0

Обсуждение не доступно в веб-версии. Чтобы написать комментарий, перейдите в приложение Telegram.

Обсудить в Telegram