Landhelgisgæsla Íslands/Icelandic Coast Guard (Facebook)
Landhelgisgæslan gaf í síðustu viku út 4. útgáfu þessa árs af Tilkynningum til sjófarenda.
Í þessari útgáfu kemur fram að þrjú dufl við Brimskerjaröst vestan Flateyjar í Breiðafirði hafi verið tekin úr notkun. Duflin afmörkuðu þrönga siglingaleið sem Breiðarfjarðarferjan Baldur fór stundum um en gerir ekki lengur.
Einnig er greint frá útgáfu nýrrar kortaskrár Sjómælinga- og siglingaöryggisdeildar Landhelgisgæslunnar en þar er að finna upplýsingar yfir sjókort og aðrar útgáfur fyrir sjófarendur sem Landhelgisgæslan gefur út.
Útgáfu 4 má finna í ummælum hér að neðan.
Обсуждение 0
Обсуждение не доступно в веб-версии. Чтобы написать комментарий, перейдите в приложение Telegram.
Обсудить в Telegram