avatar
NATO OTAN Military Army News - North Atlantic Treaty Organization by RTP [Marine, Navy, Air, Space, Ground, Coast Force EU USA]
@natoarmynews
13.01.2025 16:29
Landhelgisgæsla Íslands/Icelandic Coast Guard (Facebook)

Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar annaðist metfjölda útkalla árið 2024. Alls var sveitin kölluð 334 sinnum út í fyrra sem er 31 útkalli meira en árið 2023. Af útköllunum 334 voru 135 farin á fyrsta forgangi og 150 á öðrum forgangi.

Ríflega helmingur útkallanna voru vegna sjúkraflutninga eða um 183 útköll. Sjúkraflutningum á landi og sjó fjölgaði um tæplega 14% frá fyrra ári þegar farið var í 161 sjúkraflutning. 85 útköll voru vegna leitar eða björgunar. Eins og áður voru flest útköllin á Suðurlandi eða um þriðjungur allra útkalla síðasta árs. Einnig var nokkur fjöldi vegna útkalla sem tengdust jarðhræringunum á Reykjanesi.

Útköll á sjó voru um fimmtungur allra útkalla þyrlusveitar Landhelgisgæslunnar.

Þyrluútköllum hefur fjölgað jafnt og þétt á undanförnum áratug og til samanburðar má nefna að árið 2016 voru útköllin 253.
580

Обсуждение 0

Обсуждение не доступно в веб-версии. Чтобы написать комментарий, перейдите в приложение Telegram.

Обсудить в Telegram