Landhelgisgæsla Íslands/Icelandic Coast Guard (Facebook)
Tilkynningar til sjófarenda komnar út
Eitt af lögbundnum hlutverkum Landhelgisgæslunnar eru sjómælingar (dýptarmælingar) og sjókortagerð fyrir íslenskt hafsvæði ásamt útgáfu annarra sjóferðagagna og eru þessi verkefni í höndum sjómælinga- og siglingaöryggisdeildar stofnunarinnar.
Sjókort hafa lögformlegt gildi og skulu þau ávallt innihalda nýjustu upplýsingar er varða siglingaöryggi. Verði breytingar á t.d. vitum, sjómerkjum, hafnarmannvirkjum, dýpi o.s.frv. þarf að uppfæra sjókortin í samræmi við það svo þau haldi sínu lögformlega gildi. Sé um meiriháttar breytingar að ræða eru gefnar út nýjar útgáfur sjókorta en ef breytingar eru minniháttar eða tímabundnar, t.d. ef sjómerki eins dufl er óvirkt eða framkvæmdavinna í gangi innan hafna, þá eru sjófarendur upplýstir með svokölluðum Tilkynningum til sjófarenda, og eiga skipstjórnarmenn þá að uppfæra sjókort sín í samræmi við þær upplýsingar sem tilkynnt er...
View original post
Обсуждение 0
Обсуждение не доступно в веб-версии. Чтобы написать комментарий, перейдите в приложение Telegram.
Обсудить в Telegram